20.7.2006 | 16:10
Kárahnjúkar - Þrándarstaðir
Við yfirgáfum öryggið og rólegheitin á Ketilsstöðum og fórum til fjalla. Stefán Mar hefur saknað frænda sinna mikið og talar út í eitt um strákana. En við fórum í efra og skoðuðum herlegheitin og það verður að segjast að það hefði mátt sökkva meira af þessu án mikils skaða. Við fórum efri leiðina til byggða í gegnum Brú. Gist var á Þrándarstöðum hjá Sigga og Guðnýju í góðu yfirlæti. Fimmtudagsmorgun var ansi blautur og kaldur þegar við tókum okkur upp og fórum í neðra og erum nú í Bjarmalandi hjá Valla og Elsu.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.